NÝJAR MYNDIR INNÁ>>>> www.myspace.com/erlalind
Jæja á fimmtudegi eftir skóla þá fórum við Vigdís og Agnes til Reykjavíkur á kagganum mínum, hehe
Þegar við komum þá skutuðum við bara Agnesi til foreldra sinna og við Vigdís gistum hjá frænku minni
Svo þegar við vöknuðum á föstudeginum var frænka mín búin að fara í bakraríið og það beid okkar bara hlaðborð í eldhúsinu! Heavy nice
Svo þá fórum við Vigdís í Smáralindina á meðan Agnes var hjá tannsa, Vigdís ætlaði að ná í vísa kortið sitt en hvað haldiði? það var ekki komið. En ég er svo óggislega góð vinkona að ég lánaði Vigdísi fyrir öllu því sem henni langaði í
hehe, ég fékk stundum svona móðurtilfinnungu að vera að borga allt
hehe
En allavega við stoppuðum bara stutt í Smáralindinni, fórum og sóttum Agnesi og fórum í Kringluna
Miklu skemmtilegra í henni
og það fyrsta sem við sáum þegar við löbbuðum inní Krigluna voru Beggi, Bjössi, Krissi og Eiður, hehehe ekkert smá lítill heimur
en allavega þá spjölluðum við smá við þá og fórum svo að versla og versla, það er alltaf stuð í því
Fengum okkur svo McDonalds
UUU.....Svoooo..... skutluðum við Agnesi heim til foreldra sinna og ég og Vigdís fórum til frænku minnar, en ehmmm...þegar við vorum alveg komnar í götuna hjá frænku minni þá sprakk á hjá okkur!!!
Not cool
og við fengum vinkonu Vigdísar til að hjálpa okkur, sem var geggjað. En það sem var ekki geggjað var að þegar við vorum að fara að leggja í stæði þá byrjaði bíllinn eikkað að vera skrítinn aftur ég sagði bara ef varadekkið er sprungið líka þá brjálast ég, ég stoppaði í stæðinu fer út og jáhá! hvað haldiði? Helvítins aukahomminn var sprunginn líka!!
Ohh..... Svo fórum við til frænku minnar, og Vigdís fór fljótlega eftir það að keppa í hokkí
og þau bustuðu þessa Reykvíkingar, með hvað var það 11-4? eða hvað? Nú jæja allavega þá kom Agnes til mín um svona 10 og við byrjuðum að hella í okkur og græja okkur, svo kom Vigdís fljótlega eftir það og bróðir hennar skutlaði okkur að kaupa miða og við fórum aftur til frænku minnar því Vigdís þurfti að klára að græja sig. En svo þá biðum við eftir taxa í klukkutíma, þangað til við fengum nóg, við Vigdís fórum út og kölluðum á næsta taxa sem fór framhjá
hahaha án djóks
og það heppnaðist svona anskoti vel
Jæja þó fórum við á Brodway á Dirty South babe 
Heavy stuuuuðððð!!!
ég og Vigdís dönsuðum af okkur skóna
þetta var geggjað, úff...fyrir utan hvað maður fær aldrei að losna við sama ljóta gelgju lýðinn sem er á Akureyri, það var bara elt mann til RVK alveg hryllilegt að sjá þessi fyrirbæri :/ hahaha!! En já allavega þá fórum við allar heim til frænku minnar eftir þetta 
Daginn eftir þá fór Agnes til foreldra sinna og frænka mín var þá búin að fara fyrir mig á dekkjaverkstæði og það þurfti bara að kaupa nýtt dekk, því hitt var bara alveg ónýtt :/ 20 cm skurður á því eða svo
en jæja ég og Vigdís ætluðum að sýna í okkur hæfileikana að skipta um dekk, við vorum búnar að brasa í svona 5 mín eða svo og lítið sem ekkert búið að gerast, haldiði að við höfðum ekki verið það heppnar að maður sem bjó í húsinu á móti sem við lögðum í stæði hafi ekki boðið okkur hljálp, og hann fór og náði í eikkerja alvöru græjur við þetta
Geggjað góður maður, ég pant fleiri svona í heiminn ;P Jæja við vorum þá loksins komnar á bíl!
haha! Við pökkuðum öllu niður og fórum í bakarí
Svo vorum við eikkað að brasa, kíkkuðum rétt svo í Smáralindina aftur og vorum alveg heavy chillaðar á því, og svo sóttum við Agnesi og eikkerja stelpu sem Vigdís þekkir og hún ætlaði að fá far með okkur og svo lögðum við af stað.
Svo þá tók Vigdís við af mér við Hreðavatnsskála (hehe, findið nafn
) til að ég gæti bara græjað mig á leiðinni
og svo þá vildi Vigdís alveg keyra alla leið þannig að ég byrjaði bara að drekka líka
hahahahaha
Guð hvað það var fyndið við vorum bara að hlusta á tónlist og svona, og allt í einu kom á skjáinn á græjunum "HEAT" við bara whaaaa...?? hahaha
þá höfðu græjurnar ofhitnast
ég prufaði fyrst að taka diskinn út úr græjunum og halda honum úti, en það virkaði ekki, þá prufaði ég að taka græjurnar sjálfar og halda þeim úti
hahaha, guði sé lof að ég missti þær ekki
líka á allri þessari ferð, Vigga crazy driver
hahaha! en við hlustuðum bara á símann hennar Vigdísar á meðan græjurnar voru að kæla sig niður, en það tók ekki langar tíma
Svo þá komum við loksins til Akureyrar um svona 11:45 og þá keyptum við miða í Sjallann á Dirty South, maður verður að gera þetta aðmennilegt og fara á hann á báðum stöðum
hehe svo fórum við heim til Vigdísar og byrjuðum að hella í okkur aðmennilega þar
Svo Þá skutlaði Alex okkur niðrí Sjallann ;P Það var heavy stuð sko!! Geðveik gaman, jafnvel skemmtilegra en í RVK!
en svo þá fórum við heim til Vigdísar
En það var tekið alveg heilan helling af myndum í Reykjavíkurferðinni og þær koma inn von bráðar!!
En svo þá eru mamma og pabbi að fara til Þýskalands í næstu viku, ákvöddu það bara alltí einu í gær, hehe og þau verða eikkað framyfir helgi
Þannig að það er bókað mál að það verði haldið eitt stykki alvöru Erlupartý þá helgi
en ég vona að eitthver hafi haft þolinmæðina í að lesa þetta allt, því ég hafði vala þolinmæðina í að skrifa þetta allt
Over and out!! :***